godir grannar


Febrúar

Höfundur uppskriftar
Sigurbjörg Bjarnadóttir
Siglufirði

Lifrarlummurnar hennar Sibbu

1 lifur, 400-500 g 150 kr.
1 laukur, stór 20 kr.
1/2 -1 bolli haframjöl 25 kr.
krydd: salt - pipar - season all
1/2-1 bolli  hveiti  20 kr. 
1 egg 37 kr.
mjólk eftir þörfum  
olía til steikingar
 
 

Samtals, ef verslað er í Samkaupum úrvali:........ 252 kr.

Aðferð

Hakkið lifur og lauk í hakkavél eða matvinnsluvél og setjið í skál. Haframjöli, hveiti, kryddi, eggi og mjólk bætt út í.
Hrært vel með sleif. Deigið á að vera svipað á þykkt og grautarlummur.

Steikið báðum megin á vel heitri pönnu.

Ath. ef lummurnar eru mátulega þykkar þá steikjast þær í gegn á stuttum tíma.

Gott með

Þennan rétt er hægt að bera fram á ýmsa vegu t.d. með spaghettí, tómatsósu eða kokteilsósu (börn elska það). Eða jafnvel sem helgarrétt með rauðkáli, baunum, kartöflustöppu og bræddu smjöri.
Einnig má setja þetta inn í hamborgarabrauð með góðri sósu og salati.

Verði ykkur að góðu.

Verð í uppskrift er samkvæmt verðlagi í febrúar 2010