godir grannar


Mars

Höfundur uppskriftar
Júlía Hjelm
Fáskrúðsfirði

Sparibrauð

2 brauð

Brauð

8 dl hveiti  
1 deild þurrger  
2 msk matarolía  
2 tsk salt  
3 dl ylvolgt vatn  

Aðferð

Öllu blandað saman og og hnoðað vel, látið lyfta sér í u.þ.b 15 mín. Skiptið deiginu í 2 hluta fletjið út í 2 ferhyrninga. Skellið fyllingunni í og rúllið upp látið á bökunarplötu (endunum stungið undir svo fyllingin leki ekki úr). Látið hefast aftur í 15-20 mín, skerið raufar í brauðin og penslið með eggi og látið inn í 200 gráðu heitan ofn þar til þau verða gullin.

Fylling

350g svínahakk  
1/2 paprika, rauð  
1/2 paprika, græn  
1/2 laukur  

Aðferð

Hakk brúnað, kryddað með season all eða svínakjötskryddi. Grænmetinu, söxuðu, hellt útí og ylað með í ca 10 mín, gott að setja smá tómatsósu samanvið til að bleyta aðeins. Fyllingin sett inn í brauðin rifinar 3 sneiðar, spægipylsa eða pepperone, ofan á hakkið og svo 1 dl af osti inn í hvort brauð.

Gott með

Mjög gott með fersku salati og kryddhrísgrjónum

Verði ykkur að góðu.