
Apríl
Höfundur uppskriftar
Guðlaug Grétarsdóttir
Skagaströnd
|
Tortellínísúpa
| 1 pk |
Coop tortellíní með kjöti |
259 kr. |
| 1 dós |
Hunts tómatmauk (paste) |
118 kr. |
| 1/2 pk |
Goða beikon í bunkum |
162 kr. |
| 1/2 poki |
gulrætur, mini, ferskar |
248 kr. |
| 100g |
blaðlaukur (púrra) |
29 kr. |
| 1 |
meðalstór laukur |
30 kr. |
| 1/2 - 1 |
súputeningur |
|
| |
salt og pipar |
|
| |
matarolía |
|
Samtals, ef verslað er í Samkaupum úrvali........... 846 kr.
Aðferð
Skerið lauk og beikon og setjið í pott og brúnið í matarolíunni.
Bætið 1 l af vatni í pottinn, súputeningi, tómatmauki og látið sjóða í ca 10 mín.
Skerið gulræturnar og blaðlaukinn í bita og bætið í pottinn, sjóðið í 10 mín.
Sjóðið tortellíníið skv. leiðbeiningum á pakka og bætið því síðast í pottinn.
Smakkið og kryddið með salti og pipar.
Gott með
Þessi súpa er mjög góð með brauði, snittubrauði eða hvítlauksbrauði.
Verði ykkur að góðu.
Verð í uppskrift er samkvæmt verðlagi í apríl 2010
|