godir grannar

 

Maí

Höfundur uppskriftar
Eyrún Ýr Tryggvadóttir
Húsavík

Eggja- og grænmetisfiskur

fyrir 3-4

1 poki tilboðsýsa, lausfryst (ca 500 g)     499 kr.
1/2 poki
    
frosin Sælkerablanda – brokkolí,
gulrætur, blómkál

99 kr.
2 egg 38 kr.
1 dl mjólk 13 kr.
  salt og pipar  
1 tsk karrý  
1 bolli rifinn ostur 84 kr.

Samtals, ef verslað er í Samkaupum úrvali: .......... 816 kr.

Aðferð

Raðið fiskstykkjunum í eldfast mót.
Stráið yfir örlitlu salti og pipar.
Dreifið grænmetinu yfir og á milli fiskbitanna.

Þeytið eggin og mjólkina í skál og kryddið með salti, pipar og karrýi.
Hellið eggjablöndunni yfir fiskinn og grænmetið.
Dreifið rifnum osti yfir.

Bakið við 200°C í u.þ.b. 35 mínútur eða þar til fiskurinn er fulleldaður og
osturinn gullinn.

Gott með

soðnum kartöflum og fersku salati.

Verð í uppskrift er samkvæmt verðlagi 1. september 2009