godir grannar


Maí

Höfundur uppskriftar
Christina Kjeldsen
 ísafirði

Selleríbuff

     
500 g sellerírót, rifin gróft (álíka og ostur) 99 kr.
50 g mozzarellaostur, rifinn 75 kr.
50 g brauðrasp 13 kr.
2 egg 80 kr.
smjörlíki til steikingar

Aðferð

Hrærið öllu vel saman og látið bíða í 15 mín.

Mótið buffin og veltið þeim upp úr raspinu og steikið á pönnu við meðalhita, alls í ca. 15 mín.

Takið buffin strax af pönnunni að steikingu lokinni svo að raspið dragi ekki í sig alla fituna.

Ofnbakaðar kartöflur

     
1,5 kg kartöflur 198 kr.
150 g/1 stk  sæt kartafla 68 kr.
olía
season all eða annað krydd, t.d. svínakjöts
gróft salt (ekki spara)

Aðferð

Skerið kartöflurnar í þunna báta, það þarf ekki að skræla þær.

Látið í eldfast mót og blandið vel með olíu og kryddi.

Steikið í u.þ.b. 35 mín. við 225 gráður C, veltið kartöflunum nokkrum sinnum og steikið þar til þær eu orðnar brúnar og stökkar.

Salat

     
1 dós grísk jógúrt 229 kr.
200 g / 3 stk. tómatar 80 kr.
250 g / 1 stk. gúrka 100 kr.
3 msk steinselja 45 kr.
2-3 geirar hvítlaukur  
salt og pipar  

Aðferð

Skerið tómata og gúrku í örþunnar sneiðar, saxið steinseljuna vel og hrærið öllu saman við jógúrtina. Kryddið með salti og pipar – smakkið til.

Samtals, ef verslað er í Samkaupum Úrvali:................ 987 kr.

Verði ykkur að góðu!

Verð í uppskrift er samkvæmt verðlagi maí 2010