godir grannar

Júlí

Höfundur uppskriftar
Christina Kjeldsen
Ísafirði

Kartöflu Músaka og tómatasalat

fyrir 4

Kjötsósa

350 g hakk, blandað – svín og naut 350 kr.
2 laukar 28 kr.
1 paprika, rauð 90 kr.
1 paprika, græn 88 kr.
3 hvítlauksrif  
1 dós tómatar (400 g), hakkaðir, frá Coop. 129 kr.
3 dl vatn (til að skola tómatdósina)  
1 dl mjólk 10 kr.
2 nautakraftsteningar  
  salt, pipar, oreganó, papriku- og chilíduft  
  olía  
     

Jafningur

   
2 dl vatn  
3og1/2 msk hveiti  
  Hvít sósa 50 kr.
50 g smjörlíki eða 2 msk olía  
4 dl mjólk  
1 dl vatn  
3 msk hveiti  
  múskat, salt og pipar  
1 kg kartöflur, soðnar og skornar í
þunnar sneiðar
150 kr.
     

Tómatasalat

4 tómatar (350 g) 93 kr.
1/2 rauðlaukur 10 kr.
  olía  
  edik, salt og pipar  
     

Samtals, ef verslað er í Samkaupum úrvali: ........... 998 kr.

Aðferð / Kjötsósa

Steikið kjötið í olíunni. Saxið grænmetið. Bætið lauknum við á pönnuna
og steikið í nokkrar mín., bætið við restinni af grænmetinu og steikið í nokkrar mín.
til viðbótar, bætið útí hvítlauk, dósatómötum, vatni, mjólk, nautakrafti og kryddi.
Sjóðið í 15 mín. Smakkið til og bragðbætið með salti, pipar, chilí- og paprikudufti.
Jafnið sósuna með vatni og hveiti – gætið þess að hún verði ekki of þunn.

Aðferð / Hvít sósa

Hitið smjörlíkið (eða olíu), bakið upp með hveiti, mjólk og vatni. Kryddið með salti, pipar og múskati.

Aðferð / Tómatasalat

Skerið tómatana og laukinn í þunnar sneiðar og blandið saman. Hrærið saman olíu, ediki, salti og pipar og dreypið yfir. (Gott að krydda með steinselju eða oreganó).
Smyrjið eldfast mót (3 lítra) raðið helmingi kartöflusneiðanna í botninn,
hellið kjötsósunni yfir, raðið restinni af kartöflusneiðunum þar ofan á og
hellið hvítu sósunni yfir. Eldið í miðjum ofni í 35-40 mín. við 180-200°C.

Njótið...

Verð í uppskrift er samkvæmt verðlagi 1. september 2009