
Ágúst
Höfundur uppskriftar
Sigrún Friðriksdóttir
Dalvík
|
Blómkálsréttur
fyrir 3-4
| 600 g |
blómkál |
213 kr. |
| 300 g |
nautahakk |
400 kr. |
| 1 |
laukur, saxaður |
16 kr. |
| 1 lítil dós |
tómatpúrra (70 g) |
59 kr. |
| 1 teningur |
kjötkraftur leystur upp í 1 dl af vatni |
|
| 1 msk |
olía |
|
| |
salt, pipar og basílíka eftir smekk |
|
| |
|
|
Sósan
|
|
|
| 2 dl |
blómkálssoð |
|
| 2 dl |
mjólk |
20 kr. |
| 3 msk |
hveiti |
|
| 2 dl |
rifinn ostur |
85 kr. |
| |
salt, pipar og basílika eftir smekk |
|
Samtals, er verslað er í Samkaupum úrvali:........... 793 kr.
Aðferð
Hlutið blómkálið í sundur og sjóðið í smástund í söltu vatni þar til það mýkist (geymið 2 dl af soðinu fyrir sósuna).
Setjið blómkálið í eldfast mót.
Steikið hakkið á pönnu í smá olíu ásamt lauknum.
Bætið tómatpúrru og kjötkraftinum útí og kryddið með salti, pipar og basilíku, látið malla í ca. 5 mínútur og hellið yfir blómkálið í mótinu.
Sósan
Setjið blómkálssoðið og 1 dl af mjólk í pott og látið suðuna koma upp.
Hristið hveitið saman við 1 dl af mjólk og hrærið útí sósuna og látið hana þykkna.
Kryddið með salti, pipar og basilíku.
Loks er osturinn settur útí og látið malla smástund.
Hellið sósunni yfir hakkið og blómkálið og bakið í 250°C heitum ofni í 10-15 mínútur.
Gott með
góðu brauði, helst heimabökuðu og eða fersku salati, upplagt að skoða hvað er til í ísskápnum.
Verði ykkur að góðu.
Verð í uppskrift er samkvæmt verðlagi 1. september 2009
|