godir grannar

September

Höfundur uppskriftar
Sigrún Friðriksdóttir
Dalvík

Ljúffeng fyllt lambahjörtu

fyrir 3-4

1 kg hjörtu (5-6 stk.) 251 kr.
1 bréf     beikon 199 kr.
  sveskjur (2-3 í hvert hjarta) 375 kr.
1 epli 51 kr.
  salt, pipar og annað krydd eftir smekk  
2 msk bláberjasulta eða rifsberjahlaup  
  smávegis hveiti til að þykkja sósuna,
hrært út í köldu vatni
 

Samtals, ef verslað er í Samkaupum úrvali:............... 876 kr.

Aðferð

Þvoið hjörtun (snyrtið skurðsárið), þerrið vel og mýkið með buffhamri, gætið þess að rífa þau ekki.
Flysjið eplið og skerið í litla bita, ekki saxa það.
Skerið hverja sveskju í tvennt.
Skerið beikonið í bita, 6 bita fyrir hvert hjarta.

Fyllið hjörtun með ávöxtunum og beikoninu og lokið fyrir með trétannstönglum, 2-3 í hvert hjarta.

Kryddið hjörtun og steikið á pönnu.
Setjið vatn á pönnuna og sjóðið rólega í ca. 2 1/2 klst., gætið þess að alltaf sé nóg vatn á pönnunni, gott að snúa hjörtunum einu sinni á suðutímanum.

Takið hjörtun af pönnunni þegar þau eru soðin og haldið þeim heitum á meðan verið er að laga sósuna.

Smakkið soðið og kryddið ef þarf, bætið sultunni á pönnuna og þykkið með hveitinu.

Gott með

soðnum kartöflum og því grænmeti sem er í uppáhaldi hjá fjölskyldunni.

Verði ykkur að góðu.

Verð í uppskrift er samkvæmt verðlagi 1. september 2009