godir grannar

Október

Höfundur uppskriftar
Ólöf Pálmadóttir
Akureyri

Lifrarbuff

fyrir 3-4

1/2 kg lifur 206 kr.
1/2 kg hráar kartöflur 90 kr.
1 laukur 12 kr.
Hakkað saman
     
1 egg 40 kr.
1 bolli hveiti (1/2 bolli hveiti og   
1/2 bolli haframjöl)
25 kr.
1/2 bolli mjólk 10 kr.
100g brætt     smjör 69 kr.
2-3 tsk salt  
1 tsk pipar  

Samtals, ef verslað er í Samkaupum úrvali:........ 452 kr.

Aðferð

Hrærið saman eggi, hveiti, mjólk, smjöri og kryddi og hrærið (með sleif) blöndunni saman við lifrar-kartöfluhakkið.
Mótið buffin og steikið á pönnu eins og lummur.

Gott með

steiktum lauk, rabbarbarasultu og soðnum eða stöppuðum kartöflum.

Það er mjög gott að gera meira en eina máltíð og frysta soppun í mátulegum skömmtum.

Verði ykkur að góðu.

Verð í uppskrift er samkvæmt verðlagi 1. október 2009