godir grannar


Nóvember

Höfundur uppskriftar
Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir
Skagaströnd

Hrísgrjóna- og rækjuréttur

fyrir 4

1/2 bolli hrísgrjón 48 kr
250g rækjur 275 kr.
1 dós sveppir 285 kr.
salt og pipar eftir smekk
1 bolli  sveppasoð (úr dósinni)   
3 msk majónes (má vera létt) 180 kr.
3 dl AB mjólk 78 kr.
1-2 hvítlauksrif 50 kr.
1 teningur   fiskikraftur frá Knorr 23 kr.
1/4 tsk milt karrý  
paprikuduft  

Samtals, ef verslað er í Samkaupum úrvali:........ 939 kr.

Aðferð

Setjið hrísgrjónin í botninn á eldföstu formi ásamt sveppasoðinu. Dreifið sveppunum og rækjunum yfir.

Hrærið majónesinu og AB mjólkinni saman í skál. Myljið fiskiteninginn, rífið hvítlaukinn og hrærið saman við majónesblönduna. Kryddið með karrýi, salti og pipar.

Setjið blönduna í eldfast mót og stráið paprikuduftinu yfir. Bakið í 180°C heitum ofni í 30 mín.

Verði ykkur að góðu.

Verð í uppskrift er samkvæmt verðlagi [nóvember 2009]