|
Ostafyllt tortellíní
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
| 250g | tortellíní, ostafyllt | 279 kr. |
| 1/2 box | sveppir | 128 kr. |
| 3-4 | hvítlauksgeirar | 16 kr. |
| olía | ||
| 1/2 bréf | skinka | 93 kr. |
| 1 | paprika, rauð | 49 kr. |
| 1 | laukur | 14 kr. |
| 1/2 | piparostur | 116 kr. |
| 1/4 lítri | rjómi | 217 kr. |
| 1 | grænmetisteningur | |
| pizzakrydd | ||
Samtals, ef verslað er í Samkaupum úrvali:........ 912 kr.
Aðferð
Sýður tortellíníið skv. leiðbeiningum á umbúðum, í cirka 17 mín. gott að setja 1 grænmetistening með.
Svissar saxaðan laukinn og marða hvítlaukinn í smá olíu, bætir svo söxuðum sveppunum útí. Setur rjómann og ostinn saman við og lætur hitna vel þangað til osturinn er nær allur bráðnaður og bætir útí á meðan saxaðri skinku og papriku og lætur krauma vel þannig að soðningin þykkni örlítið, krydda með pizzakryddinu.
Lætur vatnið renna af tortellíníinu og setur í mót og hellir soðningunni yfir, mjög gott er að strá smá parmesanosti yfir en alls ekki nauðsynlegt.
Gott með
Mjög gott með hvítlauksbrauði og fersku salati, en stendur samt alveg fyrir sínu bara eitt og sér.
Er enn betra upphitað.
Ath. Það má nota allskonar osta útí réttinn, t.d. gráðost, paprikuost og mexíkóost.
Verði ykkur að góðu.
Verð í uppskrift er samkvæmt verðlagi [desember 2009]


Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði