Ostafyllt tortellíní
fyrir 4
250g tortellini, ostafyllt
1/2 box sveppir
3-4 hvítlauksgeirar
1/2 bréf skinka
1 paprika, rauð
1 laukur
1/2 piparostur
1/4 litri rjómi
grænmetisteningur
olía
pizzakrydd
Aðferð
Sýður tortelliniið skv. leiðbeiningum á umbúðum, í cirka 17 mín.,
gott að setja 1 grænmetistening með.
Svissar saxaðan laukinn og marða hvítlaukinn í smá olíu,
bætir svo söxuðum sveppum útí.
Setur rjómann og ostinn saman við og lætur þetta hitna vel þangað til
osturinn er nær allur bráðnaður og bætir útí á meðan saxaðri skinku
og papriku og lætur krauma vel þannig að soðningin þykkni örlítið,
mjög gott að bragðbæta með pizzakryddi.
Lætur vatnið renna af tortelliniinu og setur í mót og hellir svo soðningunni yfir,
mjög gott er að strá parmesanosti yfir en alls ekki nauðsynlegt.
Gott með
Mjög gott með hvítlauksbrauði og fersku salati
en stendur samt alveg fyrir sínu, bara eitt og sér.
Er ennþá betra upphitað.
Það má nota allsskonar osta útá þetta, mjög gott að breyta til með gráðaosti,
paprikuosti og mexíkóosti.
Höfundur uppskriftar
Páley Sonja Wüum Ragnarsdóttir
Grundarfirði

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði