godir grannar

Paprikusúpa með grilluðum rauðum paprikum og kjúklingabaunum

3-4           rauðar paprikur
1 dós        kjúklingabaunir
1 msk       ólífuolía
1/2 tsk      kúmenduft
1/4 tsk      kóríanderduft
1/2 tsk      paprikuduft
1               lítill laukur
1               gulrót  
1               hvítlauksgeiri, saxaður
2 bollar     grænmetissoð
                 sjávarsalt, nýmulinn svartur pipar og cayennepipar
                 söxuð steinselja

Grillið paprikurnar í ofni,
fjarlægið skinnið og skerið þær í bita.
Hellið vatninu af kjúklingabaununum og skolið þær.
Hellið ólífuolíunni í súpupott og mýkið lauk og gulrætur.
Bætið paprikum, hvítlauk, grænmetissoði og
3/4 af kjúklingabaununum saman við og látið suðuna koma upp.
Maukið súpuna.
Kryddið með salti, pipar og örlitlum cayennepipar.
Bætið restinni af kjúklingabaununum út í.
Sáldrið steinseljunni yfir og berið fram.

Verði ykkur að góðu!

Prenta uppskrift