Nýárssúpa með salsasósu, chili og baunum
1 msk ólífuolía
1 stór laukur, saxaður
4 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 rauð paprika, niður skorin
1 gul paprika, niður skorin
svartur pipar, nýmulinn
1 bolli maísbaunir úr dós, án vökva
2 bollar salsasósa (medium-hot)
1 tsk chilíduft
4 bollar svartbaunir (black beans), úr dós, án vökva
2 bollar kúabaunir (black-eyed peas), úr dós, skolaðar, án vökva
2 bollar kjúklingasoð
1 kjúklingateningur
3 bollar vatn
1/2 bolli hrísgrjón
Aðferð
Hitið olíuna í stórum potti á meðalhita.
Mýkið laukinn, hvítlaukinn og paprikurnar í 10 mín. og kryddið með piparnum.
Bætið salsasósunni, chilíduftinu, baununum, kjúklingasoði, vatni og hrísgrjónunum
saman við og sjóðið í 30 mín. eða þar til hrísgrjónin eru soðin.

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði