Hátíðarsalat með ferskum ávöxtum, hunangi og gini
1 ananas
300 g jarðarber
1 appelsína
2 kíví
50 g hunang
2-3 msk gin
safi úr 1/2 sítrónu
Skolið ávextina. Afhýðið, fræ- og kjarnhreinsið.
Hrærið saman hunangi, gini og sítrónusafa.
Skerið ávextina í bita og setjið í skál,
hellið hunangsblöndunni yfir og veltið.

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði