Plómujógúrtís
1 kg ferskar plómur, steinlausar og skornar í bita
3/4 bolli hrásykur
1 kanilstöng
1 l vanillujógúrt
1/2 bolli vatn
Setjið plómur, sykur, kanilstöngina og vatn í pott.
Hitið vel, látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið malla í 10 mín.
þar til plómurnar eru maukaðar, hrærið af og til.
Takið pottinn af hellunni og fjarlægið kanilstöngina.
Setjið plómublönduna í blandara. Sigtið.
Hrærið jógúrtinni saman við blönduna og hellið í ísform (eða ísvél),
breiðið fólíu yfir og frystið í 2 klst.
Setjið blönduna aftur í blandarann og aftur í ísformið, breiðið fólíu yfir og frystið í 2-3 klst.
Látið ísinn standa í 10 mín. áður en hann er borinn fram.
Verði ykkur að góðu!

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði