godir grannar

Steikt egg og baunir með hvítlauki og chili

Þessi réttur hentar vel í útileguna, en bragðast líka vel heima!

250 g           reykt medisterpylsa (Ali)
2                  stórir laukar
2 dósir         bakaðar baunir í dós
200 g           sveppir (Champignon) í dós
1                  rauð / gul papríka
100 g           kúrbitur
                    Bæti má við meira grænmeti eftir eigin smekk.
                    chilipipar
3-4               hvílauksgeirar (gjarnan meira!)
                    smjör til steikingar
4                  egg

Aðferð
Skerið niður lauk og steikið í nokkrar mínútur upp úr smjöri í stórri pönnu.
Bætið út í niðurskornum sveppum.
Skerið medisterpylsuna, papríkuna, og kúrbítinn í grófa teninga og bætið út í.

Eftir nokkrar mínútur er baunum hellt út í, skolið úr dósunum með smá vatni,
og hellið í pönnuna. Látið malla á lágum hita í 5-10 mín.
Skerið hvítlaukinn í þunnar sneiðar og látið malla með síðustu mínútuna.
Kryddið með salti, pipar og chili.

Steikið egg á annarri pönnu á meðan rétturinn er að verða tilbúinn,
eða haldið honum heitum á meðan verið er að steikja eggin.

Berið fram með rúgbrauði og chilisósu.  

Bon apetit!

Höfundur uppskriftar
Roger Paterson
Egilsstöðum

Prenta uppskrift