Amerísk eplabaka
| 1/3 bolli | púðursykur (ljós) |
| 1/3 bolli | sykur |
| 1 msk | hveiti |
| 1 tsk | sítrónusafi |
| 1/3 tsk | kanill |
| 7 1/2 bolli | epli afhýdd, kjarnahreinsuð og niðursneidd |
| 1 bolli | rúsínur |
| 1 | egg |
Deig
2/3 bolli smjör eða smjörlíki
2 bollar hveiti
1 tsk salt
1 hrært egg
1/4 bolli og 1 tsk ískalt vatn
3/4 tsk edik
Aðferð / deig
Blandið saman smjöri og hveiti í stórri skál.
Blandið saman eggi, vatni og ediki í lítilli skál og blandið því strax við hveitiblönduna og hrærið.
Hnoðið og látið standa í 5 mínútur.
Skiptið deiginu í tvennt og fletjið það út.
Aðferð / baka
Forhitið ofninn í 220°C, smyrjið kökuformið.
Blandið saman sykri, hveiti, sítrónusafa og kanil, blandið síðan eplum og rúsínum saman við.
Setjið deig í botn kökuformsins, vel upp á barmana og snyrtið.
Hellið eplablöndunni yfir.
Breiðið deigi yfir og lokið bökunni (gott að gata deig örlitið með gaffli)
Penslið með egginu og stráið örlitlum sykri ofan á.
Bakið í 35-40 mínútur.
Látið bökuna kólna í 30 mínútur áður en hún er borin fram.
Gott með
vanilluís og/eða þeyttum rjóma.

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði