godir grannar

Peru- og eplabaka með dökku rommi og kanil

Ávextir

4                    perur
2                    epli, t.d. gala
1/3 bolli         dökkt romm
½                   sítróna
3/4 bolli         hrásykur (má sleppa)
2 msk             kartöflumjöl

Ofanálag

1 bolli            hveiti (eða spelt)
½ bolli           ósaltað smjör
½ bolli           ljós púðursykur
2/3 bolli         saxaðar möndlur
¾ tsk             kanill
                      örlítið sjávarsalt

Aðferð

Ávextir
Ahýðið og kjarnahreinsið perur og epli, skerið í litla bita og setjið í skál.
Sáldrið sykri, rommi og kartöflumjöli yfir og látið bíða í 30 mín.
Stillið ofninn á 180 gráður C.

Ofanálag
Hrærið saman sykur og smjör þar til smjörið er orðið ljóst,
bætið hveiti, möndlum, kanil og salti saman við og blandið vel saman.
Setjið ávextina í eldfastmót og dreifið hveiti-möndlublöndunni þar ofan á.
Bakið í 40-45 mín. eða þar til ofanálagið er orðið djúpgullinbrúnt og ávextirnir soðnir.
Ef þér finnst ofanálagið dökkna of skart skaltu leggja álfilmu yfir.

Gott með
þeyttum rjóma og / eða vanilluís.

Prenta uppskrift