godir grannar

Frönsk eplabaka

8 stór epli
1/2 bolli sykur
1 tsk kanill
1/4 bolli eplasafi
1 tsk vanilludropar
1/2 bolli rúsínur
1/2 bolli smjör
1/2 bolli púðursykur

Deig með sýrðum rjóma

1/4 bolli og 2 msk sýrður rjómi
2 msk ískalt vatn
1 tsk sykur
3/4 tsk salt
2 1/2 bolli hveiti
1/2 bolli kælt ósaltað smjör
1/2 bolli kælt smjörlíki

Aðferð / deig

Blandið saman sýrðum rjóma, vatni, sykri og salti í litilli skál.

Setjið hveitið í stóra skál. Brytjið smjör og smjörlíkið útí og blandið saman við hveitið.

Setjið blönduna með sýrða rjómanum saman við og hrærið.

Hnoðið og látið standa í 5 mínútur.

Skiptið deiginu í tvennt og fletjið það út, bregðið plasti utan um og kælið annan hlutann í 1 klst. en frystið hinn fyrir næstu böku

- þolir geymslu í frysti í 1 mánuð.

Aðferð / baka

Setjið deig í botn og vel upp á barma kökuformsins, snyrtið.

Setjið epli, sykur, kanil og epplasafa í pott og hitið að suðu,

setjið síðan vanilludropana útí.

Hellið blöndunni í bökunarformið.

Blandið saman smjöri og púðursykri og dreifið yfir eplablönduna.

Bakið við 200°C í 30-35 mínútur.


Gott með þeyttum rjóma eða vanilluís.

Prenta uppskrift