godir grannar

Seytt þorrabrauð

50 g           ger
600 ml       vatn
1 lítri          undanrenna
200 ml       hunang
2 tsk           sjávarsalt
1 kg           rúgmjöl, fínmalað
1 kg           rúgmjöl, grófmalað
250 g         hveiti

Aðferð
Hitið ofninn 110°C.
Velgið vatnið í potti. Leysið gerið upp í volgu vatninu.
Þegar það freyðir er volgri undanrennu, hunangi, salti og
rúgmjöli hrært saman við og síðan hveitinu.
Deigið á að vera þétt í sér.

Setjið deigið í mjólkurfernur, fyllið þær að þrem fjórðu.
Setjið fernurnar á rist í ofninum og bakið í um 12 klst.
Látið kólna á grind.

Ath. Hægt er að frysta brauðið í fernunum.

Prenta uppskrift