godir grannar

Linsubaunabuff með basilíku og timjan

fyrir 4

2 kartöflur, soðnar, afhýddar og kældar.
100 g linsur
1 laukur, smátt saxaður
1 egg (má sleppa)
1/2 tsk basílika
1/2 tsk timjan
sólþurrkaðir tómatar, saxaðir (má sleppa)
hvítlaukur og salt eftir smekk.

Aðferð

Rasp:

1 dl kókosmjöl

1 dl malaðar möndlur eða hnetur

Sjóðið linsurnar í ca 30 mínútur, hellið af þeim vatninu og kælið.

Hrærið öllu saman í skál. Ef farsið er of þunnt má þykkja það með smá haframjöli eða kókosmjöli.

Mótið lítil buff. Veltið þeim upp úr eggi og síðan upp úr raspinu og léttsteikið á pönnu, báðum megin þar til þau eru gullinbrún.

Prenta uppskrift