godir grannar

Makkarónufiskur

fyrir 4

1 poki lausfryst tilboðsýsa (598 kr/kg) eða um 500 gr.
4 bollar makkarónur
lítil dós Hunts lasagnesósa
1 bolli rifinn ostur
2 stórir tómatar
1 dl vatn
salt og pipar

Aðferð

Sjóðið makkarónurnar.

Setjið fiskinn í eldfast mót og kryddið létt með salti og pipar.

Bætið soðnum makkarónum í fatið, yfir og á milli fiskbitanna.

Hellið sósunni yfir fiskinn og makkarónurnar.

Setjið 1 dl vatn í sósudósina og hristið til að ná allri sósunni og þynna hana, hellið yfir.

Stráið rifnum osti yfir.

Skerið tómatana í þunnar sneiðar og leggið ofan á ostinn.

Bakið við 200°C í u.þ.b. 30 mínútur eða þar til osturinn er bakaður og fiskurinn gegnsoðinn

Gott með

fersku grænu salati og ísköldu íslensku vatni

Höfundur uppskriftar

Eyrún Ýr Tryggvadóttir

Húsavík

Prenta uppskrift