Reyktur lax með hvítvíni, sveppum, kóríander og rjóma
fyrir 3-4
2 saxaðir laukar
5 ml olía til steikingar
200 g reyktur lax
250 g sveppir
1 ml sítrónupipar
2 ml rósmarín
4 msk ferskur sítrónusafi
salt eftir smekk
100 ml þurrt hvítvín
250 ml rjómi
1/2 msk saxað ferskt kóríander
Aðferð
Mýkið laukinn á pönnu og hellið hvítvíninu út í. Skerið sveppina og bætið þeim út í.
Bætið sítrónupipar, sítrónusafa, rósmaríni og salti saman við.
Hrærið síðan kóríander og rjómanum saman við og sjóðið við vægan hita í 2 mín.
Skerið laxinn í litla bita (flögur) og setjið út í blönduna og látið sjóða í 3-4 mín.
Berið fram með fusilli pastaskrúfum (sjá rétta suðu á umbúðum).
Verði ykkur að góðu!

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði