Ýsubuff með steiktum hrísgrjónum og hollandaisesósu
| 400 g | ýsa |
| olía | |
| chíli (eftir smekk) | |
| 1 | laukur, saxaður mjög fínt |
| 2 | egg |
| 1 | soðin kartafla |
| 3 | hvítlauksrif |
| 2 msk | hveiti |
| 2 msk | rasp |
| 1½ tsk. | salt |
| ½ tsk. | cayennepipar |
| pipar | |
| smjörlíki til steikingar (ekki olía) | |
Steikt Hrísgrjón
| 200 g | jasmín hrísgrjón (coop) |
| 2 | laukar |
| 1 | paprika, græn |
| 2 | gulrætur (100 g) |
| 2 | hvítlauksrif |
| olía | |
| chili eftir smekk | |
| 3 tsk | Gyros krydd, (samanstendur af: Karrýi, salti, steinsilju, oreganó, hvítlauk, merian og sellerí blöðum.) Ef þetta krydd ekki til, er hægt að blanda saman karrýi, salti, steinsilju og oreganói. |
Aðferð
Ýsabuff
Steikið ýsuna í smá olíu og chili. Þegar hún er gegnumsteikt er auðvelt að búa til farsið. Látið það kolna og hellið vökvanum. Hrærið saman lauk, eggi, kreistum hvítlauknum, stappaðri kartöflunni, salt, pipar og cayennepipar. Bætið síðan ýsunni við og hrærið vel, gjarnan með vél, þá bætist í hveiti og rasp (kannski þarf aðeins meira en segir) Farsið má ekki vera of þunnt. Bræðið smjörlíki á pönnu, og látið 4 skeiðar af farsi út á í einu, og jafnið hvor þeirra eins og BUFF. Steikið þangað til þau eru fallega brún
Gerir 14 buff. (Ath. líka gott í nestið á brauði)
Steikt hrísgrjón
Sjóðið hrísgrjónin, hellið vatninu og skolið síðan hrísgrjónin í sjóðandi vatn og hellið aftur vatninu af, (annars klístrast þau saman, og þá gengur ekki að steikja) látið kolna smá. Skerið lauk og papriku, svolítið gróft, gulrætur í stafi og hvítlaukinn fínt. Hitið olíu á pönnu og látið kryddið út á. Steikið lauk, gulrætur og papriku í u.þ.b. 5 mín og bætið við hrísgrjónin. Steikið í 5 mín til viðbótar og bætið hvítlauknum við alveg í restina.
Gott með
holandaíssósu frá Knorr. (Það er auðvitað hægt að gera sósuna sjálf, en knorr sósan er mjög góð, og ekki feitari en ef hún er heimatilbúin, ég nota þó bara hálfan skammt af smjörlíki). Bragðbætið með sítrónu, salti og pipar.
| 1 | poka |
| 3 dl | mjólk |
| 1 msk | hveiti, blandið saman við innihald pokans. |
| 30 g | smjörlíki |
Höfundur uppskriftar
Kveðjur frá
Christina á Ísafirði

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði