Bökuð rófustappa "Rutabaga"
1 gulrófa, miðlungsstór
1 kartafla
1/4 bolli brauðmylsna (ólituð)
1/4 bolli rjómi
1/2 tsk múskat
1/2 tsk salt
1 egg
3 msk smjör
Afhýðið grænmetið, skerið það í teninga og sjóðið í léttsöltu vatni. Hellið vatninu af að suðu lokinni og stappið.
Hrærið saman brauðmylsnu og rjóma og látið standa í nokkrar mínútur. Bætið múskati, salti og eggi
saman við og hrærið blöndunni saman við rófu- og kartöflustöppuna.
Setjið stöppuna í eldfast mót og dreifið smjörbitum og múskati yfir.
Bakið í ofni við 175 gráður C í u.þ.b. 1 klst. eða þar til yfirborðið er orðið gullinbrúnt.
Verði ykkur að góðu !

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði