Fylltar kartöflur með sveppum og skinku
fyrir 4
| 4 | bökunarkartöflur |
| ólífuolía | |
| 2 msk | smjör |
| Fylling 1 | |
| 1/2-1 | askja af sveppum, sneiddir |
| 11/2 msk | ferskt timjan |
| 4 sneiðar | skinka, söxuð |
| 100 g | ostur, rifinn |
| salt og pipar | |
Fylling 2
| 100 g | hreinn smurostur |
| 50 g | smjör |
| 1/2 | paprika |
| 1 | vorlaukur |
| 1 | hvítlauksgeiri |
| salt og pipar |
Aðferð
Hitið ofninn í 200°C.
Raðið kartöflunum á ofnplötu og dreypið ólífuolíu og bakið í u.þ.b. klst eða þar til kartöflurnar eru bakaðar í gegn. Skerið þær til helminga (þvert) og holið að innan með skeið.
Bræðið smjörið á pönnu og steikið sveppi og timían. Bætið skinkunni við (gerið eins með papriku, vorlauk og hvítlauk í fyllingu 2).
Blandið kartöflukjötinu saman við sveppablönduna (1) paprikublönduna (2) og hrærið ostinn saman við. Kryddið með salti og pipar.
Fyllið kartöfluhýðin með blöndunum og bakið í 10 mínútur.

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði