godir grannar

Gulróta- og kúskússalat

1/2 bolli rúnsínur
1/4 bolli appelsínusafi
1/4 bolli sítrónusafi
1/3 bolli ólífuolía
1/2 tsk salt
1/4 msk kanill
1/8-1/4 tsk cayenne pipar
3 bollar grænmetiskraftur
1 1/2 bolli kúskús, ósoðið
1 gulrót, söxuð
1 rauð eða gul paprika, smátt skorin
1 rauðlaukur, saxaður
1/4 bolli fersk steinselja

Aðferð

Appelsínusósa

Hrærið saman rúsínum, ávaxtasafa, olíu, kanil og cayenne pipar.

Hellið grænmetiskraftinum í pott og látið suðuna koma upp, hellið kúskúsinu útí, setjið lokið á pottinn, takið hann af hellunni og látið standa í 8-10 mínútur eða þar til kúskúsið er soðið.

Hrærið i kúskúsinu með gaffli og leyfið því að kólna.

Léttsjóðið gulrót og papriku, hellið vatninu af.

Setjið kúskúsið, gulrót, papriku og laukinn í stóra skál, hellið appelsínusósunni og dreifið saxaðri steinseljunni yfir, blandið saman og látið kólna í a.m.k. 1 klukkustund.

Gott með

lambi, kjúklingi, fiski eða bara eitt sér.

Prenta uppskrift