Bakaðar kartöflur með spergilkáli
4 bökunarkartöflur
225 g svína- eða nautahakk - má sleppa, bæta þá við 1/2 bolla af spergilkáli
1 bolli spergilkál, saxað
1 bolli vatn
1 bolli cheddar-ostur
1/2 bolli sýrður rjómi
1/2 tsk sjávarsalt
1/4 tsk nýmulinn pipar
3 vorlaukar, saxaðir
Stingið göt á kartöflurnar og sjóðið.
Steikið kjötið á pönnu og setjið í skál.
Setjið vatn og spergilkál á pönnuna og hækkið hitann,
sjóðið í 4-5 mín. Hellið vatninu af spergilkálinu og
setjið það saman við kjötið.
Skerið 1/3 hluta ofan af kartöflunum, skafið kjötið úr og
setjið skeljarnar í eldfast mót.
Bætið 1/2 bolla af osti, sýrða rjómanum og saltinu saman við
kjötblönduna og stappið. Bætið vorlauk og kartöflukjöti
saman við og hrærið.
Setjið blönduna í skeljarnar, dreifið restinni
af ostinum yfir og grillið í ofni þar til osturinn er
orðinn gullinbrúnn.
Verði ykkur að góðu!

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði