godir grannar

Kartöfluborgarar

4 hambogarar án brauðs
1/2 kg. kartöflur
2 eggjarauður
4 msk. brauðrasp
2 msk. hveiti
1 msk. smjörlíki
salt og pipar eftir spekk

Aðferð

Sjóðið kartöflurnar, hrærið þær eins og um kartöflumús sé að ræða, bætið eggjarauðum og þurrefnum saman við.

Sáldrið hveiti á borð og hnoðið kartöfludeigið.

Búið til 8 kökur í sömu stærð og hamborgararnir.

Steikið hamborgarana og kartöflukökurnar á pönnu

(Ath. Steikið kartöflukökurnar báðum megin).

Notið eina kartöfluköku undir hamborgarann og aðra ofan á.

Höfundur uppskriftar

Helga Halldorsdóttir

Prenta uppskrift