Bakaðar kartöflur með rauðlauksfyllingu
2 bökunarkartöflur
1/2 bolli rifinn ostur
2 msk sýrður rjómi
1/2 tsk salt
1/4 tsk nýmulinn pipar
1 1/2 tsk smjör
2 bollar rauðlaukur, niður skorinn
2 tsk hrásykur
2 msk þurrt sérrí
1 tsk Worcestershire-sósa
1/2 tsk tímían, þurrkað
1 hvítlauksgeiri, saxaður
Sjóðið kartöflurnar í 5 mín.
Skerið þær í tvennt á langveginn.
Skafið kjötið úr hýðinu.
Blandið saman kartöflukjöti, 1/4 bolla af osti, sýrðum rjóma,
salti og pipar og setjið blönduna í hýðið.
Bræðið smjörið á pönnu og mýkið laukinn ásamt sykri í 8 mín.
Hrærið sérríi, Worcestershire-sósu, tímíani og hvítlauk og
eldið í 1 mín. Setjið laukblönduna á kartöflurnar og dreifið
ostinum yfir. Bakið við 200 gráður C í 15-20 mín.
eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn.
Góða helgi

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði