Lambakjötspílaf með mangói, karrýi og kókosmjólk
1 msk olía
600g lambakjöt, skorið í teninga
2 laukar, saxaðir
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
3 msk karrý
1 chilípipar, saxaður
400ml fitusnauð kókosmjólk
700ml grænmetissoð
400g basmati hrísgrjón
1 mangó, skorið í teninga
handfylli ferskt kóríander, saxað
handfylli ristaðar möndlur
salt og pipar
Hitið ofninn 180C.
Setjið kjötið í stóra kastarholu með olíunni og steikið Í 5 mín.
Leggið kjötið til hliðar.
Mýkið laukinn. Bætið karrýi og hvítlauk saman við og steikið í 1 mín.
Hellið heitum grænmetiskraftinum út í ásamt chilípipar og
kókosmjólk og látið suðuna koma upp.
Lokið og bakið í ofninum í 1 klst.
Kryddið eftir smekk.
Hrærið hrísgrjónunum saman við og bakið áfram í ofninum í 30 mín.
Takið pottinn úr ofninum og látið standa í 10 mín.
Hrærið lauslega í hrísgrjónunum með gaffli.
Dreifið mangói, kóríander og möndlunum yfir.
Eigið frábæra helgi!

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði