Hrísgrjóna- og rækjuréttur
½ bolli hrísgrjón – ósoðin
250 g rækjur
1 dós sveppir
1 bolli sveppasoð (úr dósinni)
3 msk majónes (má vera létt)
3 dl AB mjólk
1–2 hvítlauksrif
1 teningur fiskikraftur frá Knorr
¼ tsk milt karrý
salt og pipar eftir smekk
paprikuduft
Aðferð
Setjið hrísgrjónin í botninn á eldföstu formi ásamt sveppasoðinu.
Dreifið sveppunum og rækjunum yfir.
Hrærið majónesinu og AB mjólkinni saman.
Myljið fiskiteninginn, rífið hvítlaukinn og hrærið saman við majónesblönduna.
Kryddið með karrýi, salti og pipar.
Setjið blönduna í eldfast form og stráið paprikuduftinu yfir.
Bakið í 180°C heitum ofni í 30 mín.
Höfundur uppskriftar
Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir
Skagaströnd

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði