Kínverskar súrsætar kjúklingabollur og sósa
bolli hveiti
3 msk maíssterkja / ljós sósujafnari
3/4 tsk salt
3 egg
4.5 tsk vatn
500 g kjúklingahakk
Hitið ofninn í 190ºC
Búið til bollur úr hakkinu í munnbitastærð.
Hrærið saman hveiti, maíssterkju og salti.
Búið til holu í deigið og hellið eggjum og vatni ofan í
og hrærið saman. Hrærið síðan öllu saman þar til deigið er orðið mjúkt.
Bætið bollunum saman við, látið deigið hylja bollurnar
og djúpsteikið.
Súrsæt ananassósa
1/2 saxaður laukur
400 g ananaskurl í dós með safa
1/2 bolli púðursykur
3 msk eplaedik
1/2 tsk salt
1/2 bolli vatn
2 msk maíssterkja / ljós sósujafnari
1/2 söxuð græn paprika
Mýkið laukinn í steikingarpotti.
Bætið ananasi, púðursykri, eplaediki og salti út í
og látið suðuna koma upp.
Blandið saman maíssterkju og vatni og hellið út í ananasblönduna.
Látið malla og þykkna.
Hellið sósunni yfir kjúklingabitana.
Verði ykkur að góðu!

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði