Kjúklingur með papriku og tómatpúrru
| 3msk | olía |
| 2 | danskar kjúklingabringur |
| 1 | græn paprika |
| 1-2 | hvítlauksgeirar |
| 1 | laukur |
| 4 | gulrætur (skornar í sneiðar og soðnar) |
| 1 lítil dós | tómatpúrra (70gr) |
| 1 ½ tsk | eðalkjúklingakrydd |
| 1 tsk | paprikuduft |
| 1 ½ | teningur kjúklingakraftur |
| 150gr | hrísgrjón |
Aðferð
Kjúklingabringur skornar í hæfilega bita, olía hituð og kjúklingurinn steiktur og kryddaður með kjúklingakryddi og paprikudufti.
Gulrætur skornar í skífur og soðnar í ca.15-18 mín.
Hrísgrjón sett í pott og soðin eftir leiðbeiningum, kjúklingakraftur soðinn með, hrísgrjónin eiga að vera örlítið blaut s.s. það á að vera smá soð eftir í pottinum með hrísgrjónunum, eins og ca. ½ dl.
Paprika, laukur og hvítlaukur sett á pönnuna með kjúklingnum og svitað örlítið, tómatpúrru bætt útí.
Hrísgrjónum og gulrótum blandað saman við á pönnuna
Gott með
fersku salati og brauði
Höfundur uppskriftar
Helga V. Aðalbjörnsdóttir
Húsavík

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði