Amerískur kjöthleifur
Sósan:
2 dósir tómatþykkni
1 bolli tómatsósa
1-2 msk edik
2 msk púðursykur
1,5 bolli vatn
Aðferð: Hræra öllu vel saman.
Kjötdeig:
500 gr nautahakk
1 stór laukur, saxaður
1/2 paprika söxuð
1,5 msk “sweet relish”
1 egg
1-2 tsk hvítlaukssalt
1 tsk pipar
1 bolli brauðrasp
og helmingur af sósu.
Aðferð: Hræra ölllu saman og móta hleif.
Setja hleifinn í eldfast mót, hella sósunni yfir og til hliðanna.
Baka við 180 gráður C í 45 mín.
Setja vatn yfir ef réttur þornar.

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði