Pörusteik - steiking
1 svínabógur
7 lárviðarlauf
7 negulnaglar
gróft sjávarsalt pipar úr kvörn
Aðferð
Hitið ofninn í 190°C. Setjið bóginn í ofnskúffu með pöruna niður. Hellið vatni í skúffuna, vatnsborðið á að ná upp á miðja steikina. Bakið í 20 mín.
Takið kjötið úr ofninum. Skerið rákir í pöruna með 1 cm millibili, 7mm djúpar.
Kryddið kjötið báðu megin. Saltið pöruna vel.
Stingið lárviðarlaufum og negulnöglum í raufarnar.
Hellið vökvanum úr ofnskúffunni (fjarlægið fitu) og nýtið í sósuna.
Bakið kjötið áfram, paran snýr upp, í 20 mín.
Hækkið hitann í 200°C og steikið í 10 mín. eða þar til paran er orðin stökk.

Fjölskylduuppskriftmánaðarins
X-tra ódýrtsjá frábær verð!
Úrvals kjötborðheitur matur og snarl í hádeginu
Lopiá góðu verði